S. Hermann ehf. hefur starfað frá árinu 1985 og byggt upp sterka sérþekkingu á lausnum til vatnshreinsunar fyrir sundlaugar, heilsulindir, fyrirtæki, heimili, sumarhús og sveitarfélög.
Við flytjum inn og bjóðum úrval af hágæða síum, síuhúsum og sérhæfðum búnaði, þar á meðal sandsíur, jöfnunartanka, dælur, rafmagnsforhita, UV-ljós og RO-kerfi. Allar okkar vörur koma frá framleiðendum sem hafa sannað sig í krefjandi aðstæðum.
Með yfir fjörtíu ára reynslu bjóðum við faglega ráðgjöf, persónulega þjónustu og traustar lausnir sem henta hvort sem verkefnið er einfalt eða flókið.
S Hermann – Allt til hreinsunar á vatni.
