
Vatnssíur fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki
Allt til hreinsunar á vatni – vatnssíur, síuhús, kolasíur, UV-ljós og RO kerfi frá S Hermann.
Við bjóðum mikið úrval að síum til hreinsunar á vatni
S Hermann selur vatnssíur til hreinsunar á vatni fyrir heimili, sumarhús, matvælaiðnað, drykkjarvöruframleiðslu, lyfjaframleiðslu, sjávarútveg og heilbrigðisstofnanir. Við bjóðum upp á síuhús í ýmsum stærðum (5″, 10″ og 20″), auk sérhæfðra sía á borð við EPE-, PSP- og SWP-síur frá Fileder, ásamt kolasíum, UV-tækjum og RO-kerfum. Með yfir 40 ára reynslu tryggjum við að þú fáir réttu lausnina fyrir þínar aðstæður.
Hvers vegna þarf vatnssíu?
Vatn getur innihaldið sand, ryð, set eða önnur óhreinindi sem hafa áhrif á bragð, lykt og endingu lagnakerfis og tækja. Vatnssía fangar þessi óhreinindi áður en vatnið fer inn í heimilis- eða iðnaðarkerfi, sem lengir líftíma tækja á borð við dælur, hitakúta og heimilistæki.
- EPE síur – Pólýprópýlen-síur sem henta vel til almennrar hreinsunar á heimilis- og iðnaðarvatni.
- PSP síur – Síur með háa óhreinindahaldsgetu, henta þar sem mikið álag er á síubúnað.
- SWP síur – Vafðar síur sem henta til fínni hreinsunar.
Leitar þú að kolafilter, UV-ljósi, RO-kerfi eða síum fyrir heitt vatn? Sjá kolafilter, UV-ljós, RO kerfi eða síur fyrir heitt vatn.
Hvernig veit ég hvaða síu ég þarf?
Rétt sía fer eftir vatnsgæðum, notkun og því flæði sem þarf í gegnum kerfið. Hafðu samband við okkur — við metum aðstæður og mælum með réttri stærð og gerð af síu, hvort sem er fyrir heimili, sumarhús eða iðnað.
Hversu oft þarf að skipta um vatnssíu?
Það fer eftir vatnsgæðum og notkun, en almennt er miðað við að skipta um innskot á 3–6 mánaða fresti til að viðhalda góðri virkni og flæði.
Fleiri gerðir í boði.
Hafðu samband og við veitum með ánægju nánari upplýsingar. S Hermann hefur áratuga reynslu í að finna réttu vatnssíuna fyrir hreinsun á vatni – hvort sem er fyrir heimili, sumarhús eða fyrirtæki.
